Hér hefur verið mestmegnis gestagangur frá því annan í aðventu. Jesper Kempenaar kom hingað í heimsókn yfir eina helgi og skemmti sér vel í samvistum við systur sína og mág. Út var farið að eta og bjórar drukknir. Eftir brotthvarf hans birtust hér í staðinn Guðlaugur og Þorbjörg Helga til að nota með okkur orlofsviku. Ósköp ljúft og mikið gaman.
Hér gæða börnin sér á körrívúrst frá Curry 36 á Mehringdamm
Foreldrarnir komu svo beint í brottfararsniðið af Gullu og Obba. Það er ekki annað hægt að segja en að hér hafi verið haldin dýrðleg jól og gleðilegt ár. Sjálfur eldaði ég kalkún í jólamatinn með stáltraustri leiðsögn móður minnar.
Nú er ekki mikið eftir af þessari ördvöl hér í Berlín. Þrír mánuður eru ekki langur tími og aðeins örskotsstund að líða þegar maður hefur þá skemmtilega.