Ég er hins vegar búinn að finna Mokkajakka sem ég fann í Humana, stórri og mikilli annarrarhandarbúð á Frankfurter Tor. Ég hef mig hins vegar ekki í að fara þangað og sækja hann. Nota kannski ljönnsbreikið mitt á morgun til þess.
Við fórum líka á Ljósmyndasafnið og sáum Helmut Newton sýninguna. Það þótti mér skemmtilegt enda þykir mér Helmut Newton töff.
Tók svo þessa mynd af brotnu kirkjunni, eins og ég kalla hana. Svolítill fetish hjá mér.