26.12.2009 - Sögur úr tilverunni
Það er svo sem ekki hægt að segja að hér hafi verið framin stórvirki í bloggskrifum. Var það ætlunin? Njá, máski ekki en þó var stefnan tekin á tíðari frásagnir er hér hafa verið framkvæmdar.

Hér hefur verið mestmegnis gestagangur frá því annan í aðventu. Jesper Kempenaar kom hingað í heimsókn yfir eina helgi og skemmti sér vel í samvistum við systur sína og mág. Út var farið að eta og bjórar drukknir. Eftir brotthvarf hans birtust hér í staðinn Guðlaugur og Þorbjörg Helga til að nota með okkur orlofsviku. Ósköp ljúft og mikið gaman.

Hér gæða börnin sér á körrívúrst frá Curry 36 á Mehringdamm

Foreldrarnir komu svo beint í brottfararsniðið af Gullu og Obba. Það er ekki annað hægt að segja en að hér hafi verið haldin dýrðleg jól og gleðilegt ár. Sjálfur eldaði ég kalkún í jólamatinn með stáltraustri leiðsögn móður minnar.

Nú er ekki mikið eftir af þessari ördvöl hér í Berlín. Þrír mánuður eru ekki langur tími og aðeins örskotsstund að líða þegar maður hefur þá skemmtilega.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=324: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

30.11.2009 - Glühwein
Þegar ég bjó í Amsterdam má segja að jólastemmingin hafi verið ræst þegar barirnir fóru að selja Glühwein. Reyndar er merkilega lítil jólastemming í Hollandi. Þeirra helsta hátið snýst í kringum Sinterklaas sem á afmæli í byrjun desember. En það er önnur saga. Í desember er sum sé hægt að gæða sér á Glühwein hér og þar og fá sér jafnvel piparkökur með því. Það sama er uppá teningnum í Svíþjóð. Þar er ágætis glöggmenning og t.d. nokkur stemming þegar Blossa-glöggin kemur í Sýstembólaget. Hér í Berlín er mikil Glühwein stemming og hægt að versla á börum og jólamörkuðum og jafnvel einhverjum útibásum á verslunargötum. Við eigum líka flösku af Nürnberger-glóvíni sem sennilega verður opnuð sem desert í kvöld.

Þessarar stemmingar hef ég saknað á Íslandi dáldið. Það er svo sem ekkert skrítið að það sé ekki sérlega inngróin glöggvarstemming á Íslandi, við höfum enda aðra hluti og góðgæti til að koma okkur í jólaskap. Jújú, auðvitað eru tillraunir íslendinga með að hita rauðvín í potti ásamt með exótískum kryddum efni í ágætis stemmingu. En slíkar aðfarir vilja stundum snúast upp í fillirí og vesen. Auk þess sem gæði glöggvarinnar verða oft æðimisjöfn.

Er engin stemming fyrir því að flytja inn og selja góða glögg í ríkinu, eins og t.d. Blossa-glöggina og Nürnberger-glóðvínið? Eru einhverjir barir í Reykjavík sem bjóða upp á jólaglögg á aðventunni? Spyr sá sem ekki veit?

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=308: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

28.11.2009 - Húrra, koma kannski jólin í ár
Ég hef yfirleitt ekki kært mig mikið um að heyra jólalög fyrr en í desember. Verð eiginlega fúll þegar ég heyrir jólalög í útvarpinu fyrir fyrsta í aðventu. Nú er hins vegar svo jólalegt orðið á Bergmannstrasse og víða annarsstaðar að ég fór að syngja um meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó á leiðinni heim úr búðinni áðan, hvar ég keypti m.a. Glühwein. Hér er þó enginn snjór. Annars fórum við Jóhanna á Stasísafnið í dag. Nokkuð skemmtilegt, magnað að sjá njósnagræjurnar, t.d. myndavél dulbúin sem fuglahús.



mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=300: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

27.11.2009 - Spreepark - frh.
Faðir minn spyr hvers vegna Spreepark hafi lagst í eyði. Sú saga er nokkuð merkileg.




Fyrstu tuttugu árin var starfsemin í blóma. Þetta var 1969-1989 og þá kallaðist garðurinn Kulturpark Plänterwald. Eftir að múrinn féll og Austur-Þýskaland var leyst upp, leystist starfsemi Kulturpark líka upp. Garðurinn komst undir stjórn Norbert Witte. Allt gekk vel í fyrstu en svo tók að halla undan fæti. Eftir rúman áratug var nýi skemmtigarðurinn lýstur gjaldþrota. Witte ákvað að reyna fyrir sér í Perú og flutti hluta tækjanna þangað. Það gekk ekki neitt og kallinn fór endanlega á hausinn. Til að redda fjárhagnum reyndi hann að smygla um 150 kg af kókaíni frá Perú til Þýskalands. Það mistókst og Witte fór í fangelsi. Hann losnaði úr haldi í fyrra og býr nú í hjólhýsi í garðinum.

Frá því 2002 hafa nokkrir aðilar haft áhuga á því að koma að rekstri skemmtigarðsins en allir hætt við, annað hvort vegna tregðu í samskiptum við yfirvöld eða vantrúar á veikburða efnahag Þýskalands. Á meðan heldur garðurinn áfram að drabbast niður.

Þessa sögu má fræðast betur um í heimildarmyndinni Achterbahn.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=298: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

23.11.2009 - Næstum desember
Flýgur tíminn. Við kíktum í Spreepark Plänterwald í gær. Það er gamall skemmtigarður sem átti sinn hápúnkt á áttunda og níundaáratugnum en er nú yfirgefin sorgarmynd. Í anda nostalgíunnar sem ræður ríkjum í Berlín þessi misserin hefur nú verið gert út á þetta með gæduðum túrum.

Fall Dínósáranna í Spreepark.

 

Þetta var magnað að sjá og eitthvað smá póst-apoktaliptískt við þetta. Yfirgefin leiktæki og kofar, allt í niðurníslu, eða amk að hluta. 

 

 

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=294: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

17.11.2009 - Í grænni lautu

Helgin nýtt í menningu og fillirí að venju. Fórum eftir gædbókinni í og skoðuðum sendiráðin. Það varð efni í myndasyrpu:

 

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=288: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

07.11.2009 - Sólin skín, í Berlín

MTV hélt hér evrópsku tónlistarverðlaunin á dögum. Af því tilefni og af því að nú um mundir eru 20 ár liðin frá falli múrsins vildi U2 halda tónleika við Brandenburgarhliðið. Ókeypis nótabene. Ég var í hópi þeirra sem reyndi að næla mér í tvo af þessum 10.000 miðum sem voru seldir. Gekk ekki. 

En tónleikarnir fóru fram öngvu síður. Á einhvern ótrúlega snjallan hátt datt skipuleggjendunum í hug að reisa upp gríðarstórt grindverk, eiginlega hálfgerðan múr, umhverfist tónleikasvæðið. Þetta fór dáldið fyrir brjóstið á fólki. Skiljanlega, að reisa múr umhverfis þá fáu heppnu sem gátu nælt sér í miða til að fagna því að enginn múr væri á sama stað.

En hvað um það. Ég er hress og kátur enda búinn að næla mér í þennan líka fína jakka. 

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=264: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

01.11.2009 - Tíminn líður hratt.
Dagarnir hér líða hratt og við megum hafa okkur öll við ef við ætlum að ná að gera allt sem við höfum verið að ráðgera. Við höfum þó náð að afreka eitt og annað en helgin var róleg. Stálumst til að nota laugardaginn í búðarráp á Ku'damm. Skilaði mér einhverskonar hálstrefli og bók um Berlín. Jóhanna hefur enn ekki fundið stígvélin. 

Ég er hins vegar búinn að finna Mokkajakka sem ég fann í Humana, stórri og mikilli annarrarhandarbúð á Frankfurter Tor. Ég hef mig hins vegar ekki í að fara þangað og sækja hann. Nota kannski ljönnsbreikið mitt á morgun til þess.

Við fórum líka á  Ljósmyndasafnið og sáum Helmut Newton sýninguna. Það þótti mér skemmtilegt enda þykir mér Helmut Newton töff.

 

Tók svo þessa mynd af brotnu kirkjunni, eins og ég kalla hana. Svolítill fetish hjá mér. 

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=259: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

30.10.2009 - Klippt og skorið
Við skelltum okkur í leikhús í gær. Í Schaubühne á Lehniner Platz. Sáum stykkið Der Schnitt. Undarlegt helvíti. Níðþungt og erfitt. En ágætt. Nú er stefnan tekinn á gleðistund á kokkteilbar í hverfinu. Hvern veit ég ekki. Það verður bara að koma í ljós. Svo sem úr nógu að velja.

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=258: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook

26.10.2009 - Sunnudagur í Berlin

Við fórum, eins og svo gjarnan, á flóamarkaði í gær. Jóhanna í leit að stígvélum og ég í leið að jakka. Það getur verið kalt hérna, og kólnar bara.

 

Við kíktum meðal annars á markaðinn stóra í Mauerpark. Þrátt fyrir ítrekaða leit fundust hvorki stígvél né jakki við hæfi. Hins vegar var óskaplega huggulegt að vappa um á þessum bjarta haustdegi og njóta tilverunnar. Þangað til við stigum aftur á hjólin og keðjan á Jóku hjóli slitnaði.

Það tók okkur klukkustund að djöflast með hjólin heim í U-Bahn. Osvei. 

mySQL error with query SELECT COUNT(*) FROM nucleus_comment as c WHERE c.citem=255: Table './vettvangur_com/nucleus_comment' is marked as crashed and should be repaired

Ummæli | Birta á Facebook